company logo

Electrician

Marel.com

Office

Gardabaer, Iceland

Full Time

Liðsfélagi í hóp rafvirkja

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa í hóp rafvirkja við samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum m.a. upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi, fjölskylduvænan vinnutíma, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.

Framleiðsla JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.

Starfið Felur í SéR:

  • Víringar á rafmagnstöflum og tengingar á búnaði
  • Samsetningu fjölbreyttra tækja og búnaðar
  • Spennusetning og úttekt á öryggisbúnaði
  • Stillingar, prófanir og gæðaúttektir ásamt frágangi fyrir útflutning

HæFniskröFur:

  • Sveinspróf í rafvirkjun (nemar koma til greina)
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
  • Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun
  • Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
  • Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
  • Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
  • Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)
  • Áhugi á að vaxa og læra

Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. 

Electrician

Office

Gardabaer, Iceland

Full Time

October 27, 2025

Marel.com

marel_news